Fara í innihald

Bad Bunny

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bad Bunny
Image
Bad Bunny árið 2019
Fæddur
Benito Antonio Martínez Ocasio

10. mars 1994 (1994-03-10) (32 ára)
Störf
  • Rappari
  • söngvari
  • lagahöfundur
  • upptökustjóri
  • leikari
  • glímukappi
Ár virkur2013–í dag[1][2]
Tónlistarferill
Stefnur
HljóðfæriRödd
Útgefandi
  • Hear This Music
  • Rimas
Vefsíðadebitirarmasfotos.com

Benito Antonio Martínez Ocasio (f. 10. mars 1994), þekktur undir listamannsnafninu Bad Bunny, er rappari og söngvari frá Púertó Ríkó.

Hann er fæddur og uppalinn í Púertó Ríkó. Hann vakti fyrst athygli árið 2016 með laginu „Diles“. Meðal þekktra laga hans eru „I Like It“ með Cardi B og „Mía“ með Drake. Frumraunarplatan hans, X 100pre, var gefin út árið 2018.

Þriðja breiðskífan hans, El Último Tour Del Mundo (2020), varð fyrsta platan á spænsku til að ná efsta sæti Billboard 200-listans, og sú fjórða, Un Verano Sin Ti (2022), var tilnefnd til Grammy-verðlauna sem plata ársins (Album of the Year). Debí Tirar Más Fotos (2025) varð svo fyrsta platan á spænsku til að vinna þau verðlaun.[3] Bad Bunny fór með hálfleikssýningu Super Bowl árið 2026.

Hann hefur unnið nokkur Grammy-verðlaun, Latin Grammy-verðlaun og fjölmörg önnur tónlistarverðlaun. Hann var mest streymdi tónlistamaður heims á Spotify á árunum 2020–2022 og aftur árið 2025.[4]

Útgefið efni

[breyta | breyta frumkóða]

Breiðskífur

  • X 100pre (2018)
  • YHLQMDLG (2020)
  • El Último Tour Del Mundo (2020)
  • Un Verano Sin Ti (2022)
  • Nadie Sabe Lo Que Va a Pasar Mañana (2023)
  • Debí Tirar Más Fotos (2025)

Samvinnuplötur

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Bad Bunny: Las frases más inspiradoras que encontramos en sus canciones“. HappyFM (spænska). 15 ágúst 2021. Afrit af uppruna á 9 apríl 2023. Sótt 7 maí 2023.
  2. Monger, Timothy. „Bad Bunny“. AllMusic. Afrit af uppruna á 15 febrúar 2021. Sótt 15 nóvember 2019.
  3. Sherman, Maria (2 febrúar 2026). „Bad Bunny wins album of the year at the 2026 Grammy Awards, making history for a Spanish-language album“. PBS. Afrit af uppruna á 3 febrúar 2026. Sótt 3 febrúar 2026.
  4. „Listeners Worldwide Crown Bad Bunny Global Top Artist for the Fourth Time“. Spotify Newsroom. 3. desember 2025. Afrit af uppruna á 5 febrúar 2026. Sótt 5 febrúar 2026.
Image  Þetta æviágrip sem tengist tónlist er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.