Christopher Plummer
Christopher Plummer | |
|---|---|
Christopher Plummer árið 2007. | |
| Upplýsingar | |
| Fæddur | Arthur Christopher Orme Plummer 13. desember 1929 Torontó, Ontario, Kanada |
| Dáinn | 5. febrúar 2021 (91 árs) Weston, Connecticut, Bandaríkjunum |
| Þjóðerni | Kanadískur |
| Ár virkur | 1946–2021 |
| Maki | Tammy Grimes (g. 1956; sk. 1960) Patricia Lewis (g. 1962; sk. 1967) Elaine Taylor (g. 1970) |
| Börn | Amanda Plummer |
| Helstu hlutverk | |
| Georg von Trapp í Söngvaseiður | |
| Óskarsverðlaun | |
| Besti karlleikari í aukahlutverki fyrir Beginners (2012) | |
Arthur Christopher Orme Plummer (13. desember 1929 – 5. febrúar 2021) var kanadískur leikari. Leiklistarferill hans náði yfir sjö áratugi og á þeim tíma birtist hann bæði í kvikmyndum, leikritum og sjónvarpi. Plummer vann meðal annars til Óskarsverðlauna, tvennra Tony-verðlauna og tvennra Emmy-verðlauna og varð þar með eini kanadíski leikarinn með svokallaða „þrefalda leiklistarkrúnu“.[1][2][3][4] Plummer hlaut einnig BAFTA-verðlaun, Golden Globe-verðlaun og Screen Actors Guild-verðlaun, auk þess sem hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna.
Plummer hóf feril sinn í leiklist í Ottawa og lék ýmis sviðshlutverk í Kanada, Bandaríkjunum og Bermúda. Frumraun hans á Broadway var árið 1954 í leikritinu The Starcross Story. Hann hlaut tvenn Tony-verðlaun, hin fyrri sem besti leikarinn í söngleik fyrir að leika Cyrano de Bergerac í Cyrano (1974) og hin síðari sem besti leikarinn í leikriti fyrir að leika John Barrymore í leikritinu Barrymore (1997). Plummer var einnig tilnefndur til Tony-verðlauna fyrir hlutverk sín í J.B. (1959), Óþelló (1982), Einskis manns landi (1994), Lé konungi (2004) og Hann skal erfa vindinn (2007).
Frumraun Plummers á hvíta tjaldinu var í myndinni Bak við tjöldin (1958). Hann birtist í fyrsta aðahlutverki sínu í kvikmynd síðar sama ár í myndinni Wind Across the Everglades. Plummer varð heimsþekktur eftir að hann lék Georg von Trapp kaptein í söngvamyndinni Söngvaseiður á móti Julie Andrews árið 1965.[5] Á þessum tíma birtist Plummer einnig í aðalhlutverkum í myndunum Hrun Rómaveldis (1964), Waterloo (1970) og Maðurinn sem vildi verða konungur (1975).
Plummer hlaut Óskarsverðlaun sem besti karlleikari í aukahlutverki fyrir að leika gamlan, samkynhneigðan mann í gaman-dramamyndinni Beginners (2011). Hann var tilnefndur til sömu verðlauna fyrir hlutverk sín sem Lev Tolstoj í dramamyndinni Endastöðin (2009) og J. Paul Getty í glæpatryllinum All the Money in the World (2017). Hann er einnig þekktur fyrir hlutverk sín í myndunum Bleiki pardusinn birtist á ný (1975), Somewhere in Time (1980), The Man Who Planted Trees (1987), Stjörnuvíg 6 (1991), Malcolm X (1992), Uppljóstrarinn (1999), Fögur hugsun (2001), Nýi heimurinn (2005), Syriana (2005), Inside Man (2006), Karlar sem hata konur (2011) og Knives Out (2019).
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Christopher Plummer“. Golden Globes. Afrit af uppruna á 26 október 2020. Sótt 6 febrúar 2021.
- ↑ „Christopher Plummer nabs SAG Award for 'Beginners'“. CTVNews (enska). 30 janúar 2012. Afrit af upprunalegu geymt þann 1 apríl 2021. Sótt 6 febrúar 2021.
- ↑ „Film in 2012“. BAFTA Awards. Supporting Actor. Afrit af upprunalegu geymt þann 29 maí 2018. Sótt 6 febrúar 2021.
- ↑ Zak, Dan (27 febrúar 2017). „Only 22 people had ever accomplished this feat. Now, Viola Davis joins the club“. The Washington Post. Afrit af uppruna á 1. mars 2017. Sótt 14 ágúst 2020.
- ↑ Abel, Judy (31 janúar 2010). „At 80, Plummer has arrived at his 'Station'“. The Boston Globe. Afrit af uppruna á 16 febrúar 2021. Sótt 25 júlí 2012.