Sumarblaðið 2026 fjallar um orkumál og atvinnustefnu. Hér má lesa leiðara ásamt efnisyfirliti með tenglum í allar fimmtán greinar blaðsins og viðtalið sem Mariana Mazzucato veitti Vísbendingu.
Umbyltandi hagfræðingurinn Mariana Mazzucato sem er nánast með stöðu rokkstjörnu innan hins framsækna hluta efnahagsmála heimsótti loks Ísland í upphafi árs vegna mótunar atvinnustefnu næstu tíu ára. Hún settist niður með Ásgeiri Brynjari Torfasyni og kom ótrúlega mörgum atriðum á framfæri með því að tala leifturhratt og stökkva lipurlega á milli atriða.
Tvínota tækni: þegar innviðir verða varnargeta
Þótt hefðbundnar hervarnir skipti enn máli snúast öryggismál sífellt meira um seiglu samfélaga, innviði, netöryggi og tvínota tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.