Anthrax




- Anthrax er einnig heiti yfir smitsjúkdóminn miltisbrand.
Anthrax er þrasshljómsveit frá New York í Bandaríkjunum sem var stofnuð árið 1981. Sveitin var meðal vinsælli þrasssveita á 9. áratugnum og var þekkt fyrir að blanda rappi og fleiru við þungarokkið. Anthrax er talin ein af fjórum höfuðsveitum þrassins ásamt Metallica, Megadeth, og Slayer [1].
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Gítarleikarinn Scott Ian og bassaleikarinn Dan Lilker stofnuðu Anthrax árið 1981, en stuttu síðar gengu trommuleikarinn Charlie Benante, gítarleikarinn Dan Spitz og söngvarinn Neil Turbin til liðs við þá Scott og Dan, og þar með var búið að manna sveitina. Þeir félagar fengu síðan samning hjá plötufyrirtækinu Megaforce Records. Fyrsta platan kom út 1984 og hlaut nafnið Fistful of Metal. Ári síðar urðu miklar mannabreytingar. Dan Lilker hætti og fór í hljómsveitina Nuclear Assault en við hlutverki hans tók Frank Bello, frændi Charlies Benante. Sömuleiðis hætti söngvarinn Turbin, og Joey Belladonna var fenginn í hans stað. Belladonna þykir hafa haft mikil áhrif á sveitina, sér í lagi með víðara tónsviði en Turbin.
Snemma var eftir því tekið að Anthrax-menn höfðu gaman af því að gera tilraunir með ímynd sveitarinnar og gera tilraunir við aðrar tegundir tónlistar í bland við þungarokkið t.d. rapp. Einnig þóttu þeir duglegri en kollegar sínir í þrassmetal að koma húmornum að í tónlist sinni [2].
1987 kom þriðja plata sveitarinnar út, en hún hét Among the Living og er eitt þeirra þekktasta og virtasta verk. Árið 1991 vann Anthrax með rapphljómsveitinni Public Enemy og fór í tónleikaferðalag með þeim. Lagið Bring the Noise var smellur af því samstarfi.
Belladonna var rekinn úr Anthrax vegna deilna um stíl árið 1992. Dan Spitz hætti skömmu eftir og varð úrsmiður. Söngvarinn John Bush tók við sem var með rámari og dimmri rödd en Belladonna. Hann starfaði til 2005 og gerði fimm breiðskífur með Anthrax. Raunar kom hann aftur 2009-2010 til að fylla í söngvaraskarðið á tónleikum.
Árið 2010 kom Belladonna aftur í hljómsveitina. Sveitin spilaði á The Big Four tónleikaferðalaginu með Metallica, Slayer og Megadeth árið 2010.
Nýjasta skífa Anthrax, Cursum Perficio, kemur út í september 2026 og eru þá 10 ár liðin frá síðustu breiðskífu.[3]
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]Scott Ian – gítar og söngur (1981–)
Charlie Benante – trommur (1983–)
Frank Bello – bassi, bakraddir (1984–2004, 2005–)
Joey Belladonna – söngur (1984–1992, 2005–2007, 2010–)
Jonathan Donais – gítar (2013–)
Hljómplötur
[breyta | breyta frumkóða]Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Fistful of Metal (1984)
- Spreading the Disease (1985)
- Among the Living (1987)
- State of Euphoria (1988)
- Persistence of Time (1990)
- Sound of White Noise (1993)
- Stomp 442 (1995)
- Volume 8: The Threat Is Real (1998)
- We've Come for You All (2003)
- Worship Music (2011)
- For All Kings (2016)
- Cursum Perficio (2026)
Hlekkir
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Speed / Thrash Metal Allmusic
- ↑ Anthrax - Biography Allmusic
- ↑ ANTHRAX’ CHARLIE BENANTE, SCOTT IAN Talk About New Album – “MARILYN MONROE Has This Plaque In Her House Which Said ‘Cursum Perficio'” Bravewords.com, sótt 30. mars 2026