Ellesmere-eyja

Ellesmere-eyja er tíunda stærsta eyja í heimi, 196.235 km². Hún tilheyrir Kanada og er hluti af sjálfstjórnarhéraðinu Núnavút. Norðausturendi eyjarinnar er nyrsti oddi Kanada og Núnavút.
Eyjan er hálend og fjöllótt og þar er hæsta fjall Núnavút, Barbeau Peak (2.616 m) og á norðaustanverðri eynni er Challenger-fjallgarður, nyrsti fjallgarður heims. Stór hluti eyjarinnar er hulinn jöklum en jöklarnir hafa þó minnkað mikið á síðustu árum. Þjóðgarðuriinn Quttinirpaaq er á um fimmtungi eyjarinnar.
Fyrsti Evrópubúinn sem leit Ellesmere-eyju augum á síðari öldum var William Baffin árið 1616. Eyjan hlaut ekki núverandi nafn fyrr en 1852 og var þá nefnd eftir Francis Egerton, fyrsta jarlinum af Ellesmere, sem þá var forseti Konunglega breska landafræðifélagsins. Samkvæmt manntali 2021 voru íbúar eyjarinnar 144 í byggðunum Grise Fiord, Alert (nyrsta byggða bóli heims) og Eureka.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Population and dwelling counts: Canada, provinces and territories, and census subdivisions (municipalities), Nunavut“. Statistics Canada. 9 febrúar 2022. Afrit af uppruna á 27 október 2022. Sótt 19 febrúar 2022.