Fara í innihald

Karate

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Image
Karate krefst mikillar einbeitingar.

Karate (空手), einnig þekkt sem karate-do (空手道, Karate-dō), er sjálfsvarnaríþrótt sem á rætur sínar að rekja til konungsríkis Ryukyu eyja í Japan, og var þróað úr þeirra innlendu bardagalist í Okinawa undir áhrifum kínversks kenpo.[1] Karate var kannski eitt sinn bardagaíþrótt, en nú til dags er það flokkað sem sjálfsvarnaríþrótt.[2] Sá sem æfir karate kallast karate-ka (空手家).

Í karate er beitt höggum og spörkum til að yfirbuga andstæðinginn þar sem kraftmiklar og snarpar hreyfingar einkenna karate. Karate er vinsæl keppnisíþrótt víða um heim í dag. Upphaflega voru engir búningar eða belti, gráður eða stöðluð kerfi af karate, það kom allt saman þegar Gichin Funakoshi innleiddi beltakerfið frá júdó árið 1924, eftir að hann hafði kynnt karate fyrir meginlandi Japans.[3][4] Það var í seinni heimsstyrjöldinni þegar Bandaríkjaherinn kom sér fyrir á Okinawa sem karate fór að dreifa úr sér, þar sem það varð vinsælt á meðal hermanna sem voru staðsettir þar.[5]

Það var í byrjun 14. aldar sem kínverjar komu með bardagalistir sínar til Okinawa. Brátt þróaðist það í Ryukyu konungsríkið, með sitt eigið tungumál, klæðnað og hefðir með sterk tengsl við meginland Kína. Þegar japanir gerðu Ryukyu að leppstjórn undir sér og bönnuðu þeim að bera sverð, þá fóru ungir menn að blanda innlendum bardagalistum (sem hét Te, sem þýðir hönd) við þær kínversku til þess þróa aðferð til að verja sig án vopna. Þessi blendingur af bardagalistum fékk nafnið karate (唐手) sem þýðir Kínversk hönd.[4]

Nafninu var breytt árið 1936, af pólitískum ástæðum, úr 唐手 („Tang hönd“ eftir Tangveldinu, sem samsvarar „Kínversk hönd“) yfir í 空手 („tóm hönd“); en bæði nöfnin eru borin fram karate á japönsku.[6] Kvikmyndir sem voru um bardagaíþróttir á 1960 og 1970 áratugunum gerðu slíkar íþróttir vinsælli um allan heim og fóru flestir að kalla allar sambærilegar íþróttir einu orði karate.

Fjölbreyttir stílar af karate

[breyta | breyta frumkóða]

Það eru til mörg afbrigði af karate, hér eru þekktustu stílarnir:[7]

  • Goju ryu, þróað af Chojun Miyagi, leggur áherslu á jafnvægi á milli harðra (go) og mjúkra (ju) hreyfinga. Hringlaga hreyfingar, öndunar æfingar, og bardaga í návígi.
  • Shotokan, þróað af Gichin Funakoshi (og nafnið kemur frá dulnefninu sem hann notaði við ljóðaskrif), er þekkt fyrir djúpar stöður, línulega tækni, og áherslu á karftmikil högg og sterkar grunnreglur.
  • Wado ryu, þróað af Hironori Otsuka, blandar karate við jujutsu, með áherslu á undankomu, flæðandi hreyfingar, og endurbeiningu frekar en hráan styrk.
  • Shito ryu, þróað af Kenwa Mabuni, sameinar eiginleika úr ýmsum Okinawa hefðum. Það býður upp á mikið úrval af kata og blöndu af harðri og mjúkri tækni.

Beltakerfi og gráður

[breyta | breyta frumkóða]

Litir á beltunum getur verið mismunandi eftir skólum (t.d. shotokan eða goju ryu) og deildum, og er þá aðal munurinn á þeim er hvar rauða beltið er í röðinni.[8][9] Sumir notast við millistig á beltunum sem kallast mon-kyu þegar verið er að kenna yngri börnum, og þá eru beltin annað hvort með hvítri línu eða grennri en beltið sem er næst í röðinni.[10]

Kyu
Tign Litur Lýsing
10. kyu Hvítt belti XXXXXXXXXXXXX Ný byrjaður
9. kyu Rautt belti XXXXXXXXXXXXX Byrjandi
8. kyu Gult belti XXXXXXXXXXXXX
7. kyu Appelsínugult belti XXXXXXXXXXXXX
6. kyu Grænt belti XXXXXXXXXXXXX Miðstig
5. kyu Blátt belti XXXXXXXXXXXXX
4. kyu Fjólublátt belti XXXXXXXXXXXXX
3. kyu Brúnt belti, 1 rönd XXXXXXXXXXXXX Framúrskarandi
2. kyu Brúnt belti, 2 rendur XXXXXXXXXXXXX
1. kyu Brúnt belti, 3 rendur XXXXXXXXXXXXX
1. dan Svart belti (Shodan) XXXXXXXXXXXXX Meistari
2. dan Svart belti (Nidan)
3. dan Svart belti (Sandan)
4. dan Svart belti (Yondan)
5. dan Svart belti (Godan)
þessi tafla er byggð á litaröð karatedeildar Aftureldingar.[8]

Karate á Íslandi

[breyta | breyta frumkóða]
reynir santos að sýna karate
Reynir Santos að sýna karate

Áhugi íslendinga á karate er hægt að rekja til 1960, þegar meðlimir úr glímufélaginu Ármann fóru að kynna japönsku íþróttina júdó fyrir almenningi og ýmis afbrigði hennar, þar á meðal karate.[11] Árið 1965 var Jón Geir Árnason beðinn um að útskýra hvað karate væri, fyrst hann var á meðal þeirra fáu íslendinga sem voru að stunda karate og sýndi áhuga á því að stofna hóp fyrir íþróttina hér á landi.[12]

Fréttamenn fengu tækifærið til að kynnast og fjalla um karate árið 1966, þegar tveir karate meistarar frá Japan komu til Íslands í boði Judokan félagsins til að bjóða íslendingum námskeið í karate. Þeir hétu Toshiaki Tani og Akimasa Shimonishi og voru báðir tveir stúdentar frá Doshisha háskólanum í Kyoto og 3.dan í karate. Tani hafði nú þegar farið um Finnland, Svíþjóð, Danmörku og Frakkland til að kynna íþrótt sína og myndi svo halda áfram til Bandaríkjana eftir dvöl sína á Íslandi.[13][14] Námskeiðið var haldið í æfingasal Judokan í húsi Júpiters og Mars á Kirkjusandi.[15]

Karate spratt aftur upp þegar Reynir Santos sýndi karate á afmæli Júdófélagi Ármanns árið 1970. Hann var 3.dan í shotokan karate og hafði náð þeim titil árið 1962.[16] Þetta sama ár flutti hann á Biskupstungur í Árnessýslu og kenndi þar karate. Upphaflega kom hann til Íslands með Bandaríska hernum þar sem hann var staðsettur á Keflavíkurvelli og hafði meira segja komið fram í sjónvarpinu einhvern tíman á árunum 1968-1969.[16]

Reynir Santos hefur verið kallaður faðir Karate á Íslandi[17], þar sem hann byrjaði að kenna íþróttina í Reykjavík árið 1972 í húsnæði Júdófélags Reykjavíkur sem leiddi til stofnun Karatefélags Reykjavíkur árið 1973. Reynir flutti til Vestmannaeyja árið 1973 og kenndi þar karate. Síðar stofnaði hann þar Karatefélag Íslands árið 1975 (sem var seinna endurstofnað sem Shotokan Karatefélagið, sem sá um útgáfu Karateblaðsins á tímabili) og fluttist aftur til Reykjavíkur.[18][19]

Karatefélagið Þórshamar iðkar shotokan karate. Karatefélag Reykjavíkur iðkar goju ryu karate.

Karate félög og deildir

[breyta | breyta frumkóða]

Þessar upplýsingar koma að mestu leiti frá Karatesambandi Íslands.[20]

Karatefélög

[breyta | breyta frumkóða]

Karatedeildir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „History of Okinawan Karate“. www.wonder-okinawa.jp. Afrit af upprunalegu geymt þann 2. mars 2009. Sótt 3 júní 2026.
  2. „Q&A | Why is it inaccurate to call Karate a martial art?“. www.nkkf.org (enska). Sótt 3 júní 2026.
  3. „The Origin of the Belt System in Karate“. RONIN KAI KARATE (enska). Sótt 3 júní 2026.
  4. 1 2 Tsuboike, Tony Perrottet,Jun. „The Centuries-Old Sport of Karate Finally Gets Its Due at the Olympics“. Smithsonian Magazine (enska). Sótt 3 júní 2026.
  5. Crigger, Kelly (2 apríl 2018). „Here's how US Marines brought karate back home after World War II“. We Are The Mighty (bandarísk enska). Sótt 3 júní 2026.
  6. Scrima, Nick (5 janúar 2025). „China Hand (唐手) - Forefather to Karate“. Master Nick Scrima's Chinese Martial Arts Center (bandarísk enska). Sótt 3 júní 2026.
  7. Scrima, Nick (5 janúar 2025). „China Hand (唐手) - Forefather to Karate“. Master Nick Scrima's Chinese Martial Arts Center (bandarísk enska). Sótt 3 júní 2026.
  8. 1 2 „Beltakerfi og gráðun“. Ungmennafélagið Afturelding. Sótt 3 júní 2026.
  9. „Beltakerfi“. Karatedeild Hauka. Sótt 3 júní 2026.
  10. „Beltakerfi – Karatefélag Reykjavíkur“ (bandarísk enska). Sótt 3 júní 2026.
  11. „Judo - hin fágaða íþrótt Japana kynnt almenningi hér“. Morgunblaðið. 13. janúar 1960. bls. 18.
  12. „Hvað er karate?“. Morgunblaðið. 27. október 1965. bls. 30.
  13. „Sýna og kenna karate“. Morgunblaðið. 1. desember 1966. bls. 30.
  14. „Japanskir meistarar hér kynna og kenna karate“. Morgunblaðið. 7. desember 1966. bls. 26.
  15. „Karate“. Morgunblaðið. 13. janúar 1967. bls. 20.
  16. 1 2 „Reynir Santos – Karatefélag Reykjavíkur“. Sótt 31 maí 2026.
  17. „Ársskýsla Karatesamband Íslands 1985“ (PDF). KAÍ. 22. nóvember 1985. bls. 15.
  18. „Reynir Santos – Karatefélag Reykjavíkur“ (bandarísk enska). Sótt 30 maí 2026.
  19. 1 2 „Karate på Island“ (PDF). Karateblaðið, 2tbl, 2.árg. Október 1982. bls. 17.
  20. „Karatefélög og -deildir | Karatesamband Íslands“. Sótt 30 maí 2026.
  21. „English – Karatefélag Reykjavíkur“ (bandarísk enska). Sótt 30 maí 2026.
  22. „Karatefélagið Þórshamar“. gamli.thorshamar.is. Afrit af upprunalegu geymt þann 21 maí 2024. Sótt 30 maí 2026.
  23. Skessuhorn. „ÍA hornið“. bls. 18.
  24. „Karate – Stjórn – Íþróttabandalag Akraness“. Sótt 30 maí 2026.
  25. „Um félagið“. Karatefélag Akureyrar. Sótt 30 maí 2026.
  26. „Um félagið“. Karatefélag Suðurlands. Sótt 30 maí 2026.
  27. „Karatefélag Vestmannaeyja á Facebook“. Sótt 30. maí 2026.