1576
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1576 (MDLXXVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrsta íslenska almanakið prentað framan við Bænabók Guðbrands biskups á Hólar.
- Katekismus eða barnalærdómsbók eftir Pétur Palladius Sjálandsbiskup prentað í Hólaprentsmiðju.
- Þórunn Jónsdóttir á Grund (f. um 1511), dóttir Jóns Arasonar, trúlofaðist ungum presti, Jóni Þórðarsyni á Myrká. Óljóst er hvort þau giftust en hann hefur þá orðið fjórði maður hennar.
- Stefán Gunnarsson varð skólameistari í Skálholtsskóla.
- Bjarni Gamalíelsson varð skólameistari í Hólaskóla.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 7. október - Marteinn Einarsson, prestur á Staðastað og áður biskup í Skálholti.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 25. janúar - Portúgalski landkönnuðurinn Paulo Dias de Novais stofnaði São Paulo da Assumpção de Loanda í suðvestur Afríku, nú Lúanda í Angóla.
- 11. mars - Ottómanveldið náði völdum yfir borginni Fez (nú í Marokkó).
- 12. júlí - Mógúlveldið innlimaði Bengal eftir að hafa sigrað Bengalsoldánsdæmið.
- 25. júlí - Spænskir hermenn rændu borgina Aalst.
- 20. október - Spænskir hermenn rændu borgina Maastricht í Flæmingjalandi og drápu marga íbúa.
- 22. október - Mikill hluti af Haarlem í Hollandi brennur. Eldurinn hófst í brugghúsinu het Ankertje og læsti sig í næstu hús. Um 500 byggingar eyðilögðust.
- 2. nóvember - Rúdolf 2. varð keisari hins Heilaga rómverska ríkis.
- 4. nóvember - Áttatíu ára stríðið - Spánverjar réðust á Antwerpen og eyðilögðu nær alla borgina.
- 9. nóvember - Ismail II keisari Írans hóf að taka af lífi þá sem hann taldi standa ógn af sér, þar á meðal voru 9 hálfbræður hans.
- 19. desember - Aðalsfólk í Frakklandi kaus að banna mótmælendatrú.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Friðrik 2. Danakonungur gerði Tycho Brahe að lénsherra á eynni Hveðn og veitti honum tekjur til uppihalds og rannsókna sem samsvöruðu um einu prósenti af fjárlögum danska ríkisins.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- John Marston, enskt leikskáld (d. 1634).
- Stefano Maderno, ítalskur myndhöggvari (d. 1636).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 27. ágúst - Titian, ítalskur listmálari (f. um 1489).
- 21. september - Girolamo Cardano, ítalskur stærðfræðingur (f. 1501).
- 12. október - Maxímilían 2., keisari hins Heilaga rómverska ríkis (f. 1527).