Húkkorta
Útlit

Húkkorta (úr ensku: Hooker eða hollensku: Hoeker) var lítið seglskip yfirleitt með tveimur möstrum: stórsiglu með rásegl og messansiglu með latínsegl eða gaffalsegl, en seglbúnaðurinn var mjög mismunandi eftir stöðum. Þær áttu það sameiginlegt að vera með hringað stefni og skut og stýri sem náði upp fyrir skutinn og var beitt með stýrissveif. Húkkortur voru notaðar sem lítil vöruflutningaskip við strendur Norður-Evrópu á 18. og 19. öld.[1] Á tímum þilskipaútgerðar á Íslandi á 18. og 19. öld voru húkkortur og jaktir gerðar út til fiskveiða.[2]
Galway-húkkorta er einmastra skipsgerð sem var vinsæl á Írlandi og í Bandaríkjunum á 18. og 19. öld.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Anders Bjarne Fossen; Magnús Stefánsson (1979). „Verslun Björgvinjarmanna á Íslandi 1787-1796“. Saga. 17 (1): 104.
- ↑ Jón Þ. Þór (1993). „Skútuöld“. Ægir. 90 (2): 26–28.
- ↑ Scott, Richard J (1983). The Galway Hooker. Ward River Press. ISBN 0-907085-58-X.