Fara í innihald

Nehemíabók

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Image
Endurbygging múra Jerúsalem á myndskreytingu frá 1908.

Nehemíabók er ein af bókum Gamla testamentisins og Hebresku Biblíunnar (sem seinni hluti Esra-Nehemíabókar). Nehemíabók er fyrstu persónu frásögn hebreska spámannsins Nehemía. Nehemía er embættismaður við hirð Persa sem fær leyfi til að snúa aftur til Jerúsalem og endurreisa borgarmúrana eftir útlegðina í Babýlóníu. Hann gerir margvíslegar umbætur á trúariðkun og samfélagi Gyðinga og biður guð að minnast sín vegna þess. Sögutími Nehemíabókar er síðari helmingur 5. aldar f.Kr.

Upphaflega var Nehemíabók talin hluti af Esrabók. Frá miðöldum var hún kölluð „síðari Esrabók“ þegar farið var að skipta Esrabók í tvo hluta. Í mótmælendabiblíum á 16. öld var fyrst tekið að nota heitið „Nehemíabók“ yfir síðari Esrabók, og síðan þá er algengt að líta á Nehemíabók sem sérstakt rit.[1]

Deilt er um hversu sögulega nákvæm Nehemíabók geti verið.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Gallagher, Edmon L.; Meade, John D. (2017), The Biblical Canon Lists from Early Christianity, OUP, bls. 269
  2. Frevel, Christian (2023). History of Ancient Israel. SBL Press. bls. 262. ISBN 9781628375145.
Image  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.