1521
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |



Árið 1521 (MDXXI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Arason tók við ráðsmennsku á Hólum.
- Ögmundur Pálsson vígður Skálholtsbiskup.
- 6. október - Hannes Eggertsson varð hirðstjóri yfir Íslandi.
- Elsta heimild um verslun í Hólminum við Reykjavík.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Snemma árs - Vigfús Erlendsson lögmaður og áður hirðstjóri dó í Noregi.
- 28. október - Nikulás Þormóðsson príor í Möðruvallaklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 21. janúar - Leó X páfi bannfærði Martein Lúther.
- 22. janúar - 25. maí - Þingið í Worms hófst.
- 27. janúar - Súleiman mikli bældi niður uppreisn í Damaskus.
- 2. febrúar - Nydala-blóðbaðið: Danskir hermenn myrtu ábóta og marga munka í Nydala-klaustrinu í Svíþjóð að skipan Kristjáns 2..
- 6. mars - Ferdinand Magellan kom til Gvam, fyrstur Evrópubúa.
- 16. mars - Ferdinand Magellan kom til Filippseyja. Hann var drepinn af innfæddum rúmum mánuði síðar.
- Apríl- maí: Mingveldið í Kína sigraði Portúgal í sjóbardaga nálægt nútíma Hong Kong. Þetta var fyrsti bardagi Evrópubúa og Kínverja á sjó.
- Maí - Stríð braust út milli Karls 1. Spánarkonungs og Frans 1. Frakklandskonungs.
- 20. maí - Ítalíustríðin: Konungsríkið Navarra og Frakkland sigruðu spænskar sveitir við Pamplona.
- 25. maí - Þinginu í Worms lauk og Karl 5. lýsti Martein Lúther útlægan og bannaði rit hans.
- 15. júlí - Borgin San Juan var stofnuð á Púertó Ríkó.
- 13. ágúst - Borg Asteka, Tenochtitlán, féll í hendur Hernán Cortés og innfæddra bandamanna hans.
- 20. ágúst - Ítalíustríðin: Stríð braust út milli Karls 5. keisara rómverska ríkisins og Frans 2. Frakkakonungs þegar hermenn Karls réðust inn í norðaustur Frakkland.
- 23. ágúst - Gústaf Vasa varð ríkisstjóri í Svíþjóð og Kristján 2. var sviptur konungstign þar. Þar með leystist Kalmarsambandið upp.
- 29. ágúst - Tyrkir náðu Belgrad á sitt vald eftir tveggja mánaða umsátur.
- 12. september - Ítalíustríðin: Heilaga rómverska ríkið gafst upp á umsátri sínu við Parma sem var á valdi Frakklands.
- 23. nóvember - Her Spánverja, Þjóðverja og Páfaríkisins hrakti Frakka úr Mílanó.
- Sænski herinn var stofnaður.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 4. ágúst - Úrbanus VII páfi (Giambattista Castagna, d. 1590).
- 13. desember - Sixtus V páfi (Felice Peretti di Montalto, d. 1590).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 27. apríl - Ferdinand Magellan, portúgalskur landkönnuður, drepinn á Filippseyjum (f. 1480).
- Júlí - Juan Ponce de León, spænskur landkönnuður og landvinningamaður (f. 1521)
- 27. ágúst - Josquin Des Prez, flæmskt tónskáld (f. um 1450).
- 1. desember - Leó X páfi (f. 1475).
- 13. desember - Manúel 1. Portúgalskonungur (f. 1469).