1560
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1560 (MDLX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 28. mars - Poul Stigsen Hvide varð hirðstjóri. Knud Stensen lét af embættinu.
- Danakonungur náði undir sig brennisteinsverslun á Íslandi.
- Guðbrandur Þorláksson hélt til náms í Kaupmannahafnarháskóla.
- Fædd
- Ólafur Jónsson á Söndum, prestur og skáld (d. 1627)
- Dáin
- Þorleifur Grímsson, sýslumaður (f. 1490)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 17. mars - Húgenottar gerðu áhlaup á höll þar sem Frans 2. Frakkakonungur dvaldi. Leiðtogar þeirra og 1.000 fylgismenn voru teknir af lífi eftir að það misheppnaðist.
- 15. apríl - Dansk-norska ríkið keypti eyjuna Eysýslu við Eistland.
- 11. maí - Ottómanar sökktu 60 evrópskum skipum og drápu yfir 5.000 við túnisku eyjuna Djerba.
- 6. júlí - Franskt herlið sem var andvígt mótmælendatrú yfirgaf Skotland eftir friðarsamning í Edinborg við England.
- 17. ágúst - Mótmælendatrú var formlega tekin upp í Skotlandi.
- 21. ágúst - Sólmyrkvi sást í Evrópu. Hann kveikti áhuga Tycho Brahe á stjörnufræði.
- 29. september - Eiríkur 14. varð konungur Svíþjóðar eftir dauða föðurs síns, Gústaf Vasa.
- 29. október - Fyrsta myntsláttuvélin framleiddi peninga í Englandi.
- 5. desember - Karl 9. varð konungur Frakklands eftir dauða bróður síns, Frans 2.
- Fyrsta vísindafélagið, Academia Secretorum Naturae, var stofnað í Napolí.
- Mongólar réðust inn í Qinghai í Kína.
- Fædd
- 7. ágúst - Erzsébet Báthory, ungverskur raðmorðingi (d. 1614).
- Jan Karol Chodkiewicz, herforingi Pólsk-litháíska samveldisins. (d. 1621)
- Dáin
- 19. apríl - Philipp Melanchthon, þýskur siðbótarmaður (f. 1497).
- 29. september - Gústaf Vasa, Svíakonungur (f. 1496).
- 5. desember - Frans 2. Frakkakonungur, (f. 1544)