1585
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1585 (MDLXXXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Guðbrandur Þorláksson lét gera Íslandskort.
- Guðbrandsbiblía prentuð og gefin út á Hólum. Útgáfuár hennar er raunar skráð 1584 en fyrstu eintökin munu ekki hafa verið tilbúin fyrr en 1585.
- Jón Guðmundsson varð skólameistari í Skálholtsskóla.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 30. september - Halldóra Árnadóttir biskupsfrú, kona Guðbrands Þorlákssonar (f. 1547)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 12. janúar - Holland tók upp gregoríska tímatalið.
- 21. janúar - Elísabet 1. gerði 20 kaþólska presta útlæga frá Englandi. Voru þeir fluttir til Frakklands.
- 10. mars - Áttatíu ára stríðið: Spánverjar náðu yfirráðum yfir Brussel.
- 24. apríl - Sixtus V (Felice Peretti) var kjörinn páfi.
- 19. maí - Spánn tók yfir ensk skip í spænskum höfnum. Stríð Englands og Spánar (1585–1604) braust út í kjölfarið.
- 11. júní - Jarðskjálfti yfir stærð 9 skók Aljútaeyjar. Flóðbylgja banaði mörgum á Havaí.
- Júní: Stríðsherrann Toyotomi Hideyoshi réðst á eyjuna Shikoku með 113.000 menn og 703 skip.
- 17. ágúst - Spánverjar náðu yfirráðum yfir Antwerpen og skipuðu öllum mótmælendatrúar að yfirgefa borgina.
- 20. ágúst - England hóf þátttöku í Áttatíu ára stríðinu og studdi hollensku uppreisnina.
- 15. október - Hollendingar og Englendingar endurheimtu borgina Arnhem frá Spánverjum.
- 27. nóvember - Jarðskjálfti í Japan varð 8.000 að aldurtila.
- Sixtus V páfi fordæmdi stjörnuspeki.
- Fyrsta skráða sendingin af súkkulaði barst til Evrópu frá Nýja heiminum: Frá Veracruz í Mexíkó til Sevilla á Spáni.
- Kauphöllin í Frankfurt var stofnuð.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 27. janúar - Hendrik Avercamp, hollenskur listmálari (d. 1634).
- 17. maí - Peter Melander, þýskur herforingi í Þrjátíu ára stríðinu (d. 1648).
- 9. september - Richelieu kardínáli, franskur stjórnmálamaður (d. 1642).
- 9. október - Heinrich Schütz, þýskt tónskáld (d. 1672).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 10. apríl - Gregoríus XIII páfi (f. 1502).