1591
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1591 (MDXCI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Staðarhóls-Páll stefndi Helgu Aradóttur konu sinni fyrir héraðsdóm fyrir samvistarslit, fjáreyðslu og fleira.
- Henrik Krag varð hirðstjóri á Íslandi.
- Oddur Stefánsson varð skólameistari í Skálholtsskóla í fyrra skiptið.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Magnús Jónsson prúði sýslumaður á Bæ á Rauðasandi (f. 1525).
- Erasmus Villadtsson, prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð (f. um 1520).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 15. maí - Dimítríj krónprins Rússlands, níu ára sonur Ívans grimma, fannst látinn. Opinber skýring var sú að hann hefði sjálfur skorið sig á háls í flogaveikikasti en Boris Godúnov lá undir grun um að vera valdur að dauða hans.
- 30. maí - Marokkóskur innrásarher rændi borgina Timbúktú.
- 13. júlí - Krímtatarar hófu umsátur um Moskvu.
- 21. október - Áttatíu ára stríðið: Borgin Nijmegen var endurheimt af Mórits af Nassá frá Spánverjum.
- 29. október - Innósentíus IX (Giovanni Antonio Facchinetti) kjörinn páfi.
- 11. nóvember - Hinrik 4. Frakkakonungur hóf umsátur um Rúðuborg sem var á valdi Spánverja.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Nautahlaupið í Pamplona haldið í fyrsta skipti.
- Borgin Hyderabad var stofnuð á Indlandi.
- Stríð milli Síam og Kambódíu hófst.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 12. janúar - Giuseppe Ribera, spænskur málari (d. 1652).
- 8. febrúar - Giovanni Francesco Barbieri, ítalskur málari (d. 1666).
- Mústafa 1., Tyrkjasoldán (d. 1639).
- Frederik Friis, höfuðsmaður á Íslandi (d. 1619).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 15. maí - Dimítríj krónprins Rússlands (f. 1582).
- 16. október - Gregoríus XIV páfi (f. 1535).
- 30. desember - Innósentíus IX páfi (f. 1519).
- Erasmus Villadtsson, jóskur maður sem varð skólameistari í Skálholti.