1597
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1597 (MDXCVII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 3. janúar - Eldgos hófst í Heklu. Það stóð í hálft ár og olli ekki miklu tjóni.
- Johann Bockholt tók við hirðstjóraembætti af Brostrup Giedde.
- Elsta almanak sem vitað er um á íslensku, almanak Arngríms lærða, var prentað á Hólum.
- Jarðskjálfti varð á Suðurlandi og urðu skemmdir á bæjum í Ölfusi.
- 3 létust í snjóflóði á Hrafnseyrarheiði.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 24. ágúst - Þorlákur Skúlason, Hólabiskup (d. 1656).
- Pétur Einarsson frá Ballará, lögréttumaður og skáld (d. 1666).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Á þorranum - Gissur Þorláksson, sýslumaður í Ísafjarðarsýslu, fórst í snjóflóði á Hrafnseyrarheiði.
- Sigfús Guðmundsson, prestur og skáld á Stað í Kinn (f. um 1525).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 5. febrúar - 26 kristnir menn dóu píslarvættisdauða í Nagasaki í Japan. Japanir höfðu bannað allar kristnar trúarhreyfingar ári áður. Mennirnir sem höfðu komið til Japans vegna skipstrands voru krossfestir.
- 24. janúar - Áttatíu ára stríðið: Mórits af Nassá vann sigur á Spánverjum í orrustinni af Turnhout.
- 24. febrúar - Kylfustríðinu lauk í Finnlandi.
- 11. mars - Spánverjar hertóku frönsku borgina Amiens. Frakkar og Englendingar náðu borginni 4 mánuðum síðar.
- 28. ágúst - Japanir unnu sigur á kóreskum flota.
- 18. október - Nær 13.000 manna her Spánverja sigldi frá La Coruña með því markmiði að ráðast á England. Flotinn lenti í hrakningum og stormi og hrökklaðist burt.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Jakob (Malik Sagad 2.) varð Eþíópíukeisari í fyrra skiptið.
- Kristján 4. Danakonungur giftist Önnu Katrínu af Brandenburg.
- Miguel de Cervantes varpað í fangelsi vegna skulda.
- Tycho Brahe hrökklaðist úr landi í Danmörku.
- Hollendingar uppgötvuðu eyna Balí.
- Hollendingum tókst að rjúfa einokun Portúgala á kryddverslun við Austur-Indíur.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 9. júní - José de Anchietavar spænskur predikari og trúboði. (f. 1534)
- 20. júní - Willem Barents, hollenskur landkönnuður (f. um 1550).
- 9. október - Ashikaga Yoshiaki, japanskur shogun (f. 1537).