1604
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1604 (MDCIV í rómverskum tölum) var hlaupár sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu, eða sunnudegi samkvæmt júlíska tímatalinu.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Til handalögmála kom milli bænda og verslunarþjóna á Eyrarbakka.
- Þórður Guðmundsson lögmaður kærði kaupmenn einokunarverslunarinnar fyrir konungi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 14. janúar - Hampton Court-fundurinn milli fulltrúa púritana og ensku biskupakirkjunnar átti sér stað.
- 17. febrúar - Jakob 6. Skotakonungur, þáverandi Englandskonungur, skipaði jesúítum og kaþólskum prestum að yfirgefa konungdæmi sitt.
- 24. febrúar - Karl 9. Svíakonungur var formlega gerður konungur af sænska þinginu eftir að Sigmundur 3. hafði verið fjarverandi í 5 ár.
- 22. mars - Karl hertogi var hylltur sem konungur Svíþjóðar á stéttaþingi í Norrköping í kjölfar þess að Jóhann hertogi af Austur-Gautlandi afsalaði sér kröfu til krúnunnar.
- 19. maí:
- Áttatíu ára stríðið: Mórits af Nassá gerði umsátur við hafnarborgina Sluis í Spænsku Niðurlöndum með 11.000 hollenskum og enskum hermönnum. Það varði í 3 mánuði og endaði með sigri Hollendinga.
- 20. maí - Robert Catesby kallaði saman hóp sem skipulagði Púðursamsærið til að drepa Englandskonung.
- Júní - Abbas mikli Persakonungur náði borginni Jerevan af Ottómanveldinu.
- 18. ágúst - Englendingar og Spánverjar gerðu með sér Lundúnasáttmálann sem batt enda á þátttöku Englendinga í Áttatíu ára stríðinu.
- 15. september - Svíar biðu ósigur fyrir Pólsk-litháíska samveldinu í orrustunni við Weissenstein.
- 20. september - Spánverjar, undir stjórn Ambrosio Spinola, lögðu Oostende undir sig eftir þriggja ára umsátur.
- 4. október - Za Dengel var drepinn í orrustu og Jakob 1. varð aftur keisari Eþíópíu.
- 9. október - Kepler-sprengistjarnan sást fyrst frá N-Ítalíu. Johannes Kepler fylgdist með henni í um ár.
- 1. nóvember - Leikrit William Shakespeare, Óþelló, var sýnt í fyrsta skipti í Whitehall-höll í Englandi.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Hollenski byggingameistarinn Cornelis Cornelisson var sendur til Hollands til að finna fólk til að byggja Gautaborg. Fyrstu íbúarnir komu til staðarins 21. ágúst.
- Guru Ardjan samdi helga bók síka, Guru Granth Sahib.
- Frakkar hófu að setjast að í fyrstu varanlegu nýlendu sinni í Nýja heiminum, l'Acadie.
- Frakkar hófu að setjast að í Frönsku Gvæjana.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 16. janúar - Loreto Vittori, ítalskur söngvari (d. 1670).
- 17. júní - Jóhann Mórits, fursti af Nassá (d. 1679).
- 12. ágúst - Tokugawa Iemitsu, sjógun í Japan. (d. 1651)
- 16. ágúst - Bernharður af Sachsen-Weimar, hertogi og herforingi (d. 1639).
- 3. nóvember - Ósman 2. Tyrkjasoldán (d. 1622).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 11. júní - Isabella Andreini, ítölsk leikkona (f. 1562).
- 24. október - Za Dengel, Eþíópíukeisari.